23.02.1948
Efri deild: 67. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1026 í B-deild Alþingistíðinda. (1413)
103. mál, innflutningur búfjár
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Þetta frv. hefur tekið dálitlum breytingum í Nd., og eru þær flestar til bóta. Landbn. þessarar deildar hefur ekki haldið fund um málið, eftir að það kom frá Nd., en ég sé ekki ástæðu til þess, að málinu verði frestað vegna þess.
Áður var ætlazt til, að enginn gæti flutt inn búfé nema landbrh., en nú getur hann samkvæmt 1. gr. vikið frá þessu banni og veitt öðrum heimild til þess, sbr. 2. gr. Þó er þetta dálítið tvírætt, því að síðar er þess getið í 3. gr., að kostnaðinn við kaup búfjárins skuli greiða úr ríkissjóði.
Önnur breyt., sem gerð hefur verið, er sú, að sóttvarnartíminn hefur verið lengdur úr fjórum vikum upp í sex.
Þriðja breyt. er sú, að lágmarksákvæði hefur verið sett um sektirnar, og skulu þær vera 1000–20000 kr., en áður var bara miðað við 20000 kr.
Þetta eru aðalbreyt. Þótt nokkurs tvískinnungs gæti, þar sem landbrh. er heimilt að leyfa öðrum að flytja inn búfé, en jafnframt gert ráð fyrir því, að ríkið greiði kostnaðinn, sé ég ekki ástæðu til að landbn. skili áliti um málið. Ég legg til, að frv. verði samþ., en það geri ég prívat og ekki vegna þess, að n. hafi tekið afstöðu til þessara breyt.