04.03.1948
Efri deild: 74. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)
162. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum
Frsm. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er gamall kunningi, og þarf ekki að kynna það fyrir þessari hv. d. — Fjhn. var sammála um, eins og nál. ber með sér, að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Þó ber þess að geta, að einn hv. nm., eins og nál. ber með sér, hefur óbundnar hendur um afstöðu til frv. Ég leyfi mér samkvæmt þessu í umboði meiri hluta fjhn. að mæla með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.