05.03.1948
Efri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (1498)
45. mál, búfjárrækt
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Út af þessari brtt. vil ég benda á það, án þess að leggja á móti henni sérstaklega, að þegar um l. er að ræða eins og jarðræktarlög, búfjárræktarlög og fleiri lög, sem hafa í sér fólgin útgjöld fyrir ríkissjóð, sem ekki liggur ljóst fyrir fyrir fram, hve mikil verða á hverju ári, þá mun ekki vera heppilegt að hafa þennan hátt á, að miða þessar fjárhæðir við það, hve mikið fé er veitt til þess í fjárl. Ég skal nefna sem dæmi, að ég á í sumar að vera á nautgripasýningum á Norðurlandi. Það veit enginn núna, hvað víða verður sótt eftir þeim sýningum. Ríkissjóður á að láta 50 kr. á fram talið naut móti jöfnu framlagi úr hreppnum. Búnaðarfélagið á að borga ferðakostnað minn, og hrepparnir eiga að sjá um kostnaðinn heima fyrir, en auk þess er svo þessu samfara ýmis annar kostnaður, sem enginn maður veit heldur, hvað mikill verður. Ætti því að miða við fyrir fram ákveðna fjárveitingu, væri lítt framkvæmanlegt að halda nokkrar sýningar né framkvæma lögin á annan hátt. Ég vona því, að tillaga hv. þm. Barð. verði ekki samþykkt.