01.03.1948
Neðri deild: 66. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)
144. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip
Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Sjútvn. hefur orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., er getur á þskj. 395. Breyt. er í því fólgin, að tilskilið er, að Samábyrgðin veiti ekki lakari tryggingarkjör en önnur tryggingarfélög að dómi ríkisstj. Þetta er svo einfalt, að ég sé ekki ástæðu til þess að lengja umr., en vil fyrir hönd n. leggja það til, að frv. verði samþ. með þessari breyt.