15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1073 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)

144. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Viðkomandi því, sem hv. þm. Barð. sagði um að senda mál á milli deilda, þá vil ég mjög mótmæla þeirri skoðun, sem þar kom fram hjá honum hvað þetta snertir. það hefur hvað eftir annað komið fyrir, að drepin hafa verið mál vegna þess, að ekki hafa fengizt samþ. við þau brtt. af ótta við að senda þau á milli deilda. En þetta er fáránleg og alveg röng stefna. Við eigum að gera það, sem við álítum rétt og satt í hverju máli, og gera þær brtt., sem við álitum réttastar, án nokkurs tillits til þess, hvað Nd. gerir. Ég álit, að sá andi eigi að ríkja hér í hv. Ed., að hv. þdm. eigi að gera sínar till. eftir sannfæringu sinni, án nokkurs tillits til þess, hvort málin fara á milli deilda eða ekki. Það hafa stundum verið samþ. mál með óánægju allra hv. þdm. eða flestra til þess að senda þau ekki á milli deilda. Svo hafa aðrir hv. þm. notað þá viðbáru, að þeir vildu ekki senda mál á milli deilda vegna ótta við, að þau mundu falla vegna þess, en aðeins sem skálkaskjól til þess að breiða yfir þá afstöðu til mála, að þeir hafa verið á móti breyt. á málum. En þeim hefur þótt finna að segja, að þeir gerðu þetta af því, að þeir óttuðust, að hætta væri í því fólgin að senda málin milli d., heldur en að segja sannleikann umbúðalaust um afstöðu sína.