18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (1750)
142. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip
Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti. Þessu máli mun hafa verið vísað til sjútvn., en henni ekki unnizt tími til að fjalla um það. Hins vegar er n. kunnugt um það frá Ed., og ég hygg því, að mér sé óhætt að fullyrða, að n. sé því samþykk, að málið nái fram að ganga.