10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (2024)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram, að það er furðulegur áróður, sem hv. þm. S-Þ. heldur uppi um fæðingardeild landsspítalans. því að ég hélt, að það væri svo innangengt milli hans og húsameistara ríkisins, að honum ætti að vera fullkunnugt, að húsið er enn ekki fullgert. Ég vil, út af þeim áróðri, sem haldið er hér uppi um þetta mál, óska þess, að n. kynni sér málið og leggi þær upplýsingar, sem hún fær, fyrir hv. þd.