17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (2031)

Orlofsfé þingmanna

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Mig langar til að beina fyrirspurn til hæstv. forseta: Er það rétt, að einhverjir þingmenn fái greitt orlofsfé á þingfararkaup sitt? Ef svo er, hversu lengi hefur svo til gengið og hvaða reglur gilda þar um? Ég skal taka það fram, að ég ber ekki þessa fyrirspurn fram vegna þess, að ég ætli að bera fram nokkrar nýjar kaupkröfur eða hafi heyrt um að slíkra krafna sé von frá öðrum.