22.03.1948
Efri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í C-deild Alþingistíðinda. (2155)
20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit
Frsm. minni hl. (Hermann Jónasson) :
Hv. frsm. meiri hl. gat þess, að þetta mál hefði verið mikið rætt. Hvað sem öðru líður, er það rétt, og ég býst við, að ekki verði bætt við neinum nýjum atriðum, sem d. ekki þekkir. Ég get því látið mér nægja að vísa til nál. minni hl., þar sem lagt er til, að frv. verði samþ., og er það í samræmi við þá skoðun, sem ég hef áður haldið fram. Frekari umr. verða svo ekki af minni hendi, nema tilefni gefist til.