23.03.1948
Efri deild: 86. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (2303)

76. mál, ríkisborgararéttur

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr. En það er svo með hv. þm. Barð., að það er ákaflega erfitt að ræða við hann um mál yfirleitt, því að þegar búið er að keyra ofan í hann ein ósannindi, spinnur hann önnur upp. Þegar ég benti á, að meðferð þessa máls í allshn. er í fullkomnu samráði við hæstv. dómsmrh., sá hann sér ekki fært að taka upp sínar fullyrðingar um það atriði. En hins vegar ber hann hér nú fram, að mér hafi verið sérstaklega kunnugt um það, að einn af umsækjendunum um ríkisborgararétt hafi sérstakra fjárhagslegra hagsmuna að gæta í sambandi við veitingu ríkisborgararéttarins. Og hv. þm. Barð. fullyrti hér áðan, að mér hafi verið kunnugt um þetta lengi. Ég hef aldrei heyrt á þetta minnzt, fyrr en þessi hv. þm. minntist á þetta áðan. (GJ: Hv. þm. hefur verið kunnugt um þetta lengi.) Ég var ekki einu sinni búinn að gá að því, hver er nr. tvö á þskj. Þó leyfir hv. þm. Barð. sér að fullyrða svona út í loftið, að ég hafi vitað þetta lengi, sem hann talaði um. — Þá sagði hann líka, að ég hefði lýst hér yfir hvað eftir annað, að ef málið yrði tekið á dagskrá, mundi ég með ræðuhöldum reyna að þvæla þetta mál og spilla þannig fyrir því, að það næði fram að ganga. Þetta er misskilningur. Mér hefur aldrei komið slíkt til hugar. Hins vegar hef ég vakið athygli á því, að eins og málið stæði í n., þá hafi ég óttazt. að um það mundu verða langar umr., ekki af því, að ég ætlaði að þvæla málið og draga það á langinn, heldur af því, að ég átti von á því og á enn von á því, að fram komi í umr. ýmis sjónarmið um málið.

Vil ég enn beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann a. m. k. láti ekki ganga atkv. um málið, ef fleiri till. koma fram en þegar eru komnar, nema hæstv. dómsmrh. fái tækifæri til að vera viðstaddur atkvgr.