23.03.1948
Efri deild: 87. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í C-deild Alþingistíðinda. (2702)
180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Frsm. meiri hl. (Hermann Jónasson) :
Herra forseti. Eins og nál. ber með sér, hefur meiri hl. fjhn. orðið sammála um að mæla með frv. og leggur til, að það verði samþ. Ég sé ekki ástæðu til að fara að flytja hér langt mál né endurtaka það, sem segir í grg. þeirri, sem fylgir frv., en kunnugleiki minn á málinu byggist á þeim upplýsingum, sem þar eru gefnar. En ég tek fram, að ekki er líklegt, að frv. þetta nái fram að ganga, þar sem nú er svo mjög áliðið þingtímans, nema samkomulag hafi náðst um það innan ríkisstj. Er málið kom til fjhn., lá ekkert fyrir um það, en n. vildi ekki stöðva málið. Hins vegar virðast nú þær vonir, sem upphaflega var gert ráð fyrir, að frv. næði fram að ganga, hafa brugðizt. Ég geri ekki ráð fyrir því, að frv. þetta nái fram að ganga eftir þá yfirlýsingu. sem hæstv. dómsmrh. gaf hér áðan. Ég geri þess vegna ekki ráð fyrir því, ef því fer fram, sem hæstv. dómsmrh. hér lýsti yfir, að langar umr. verði um málið, þar sem kl. er nú eitt og hálf að nóttu, að þetta frv. nái fram að ganga á þessu þingi. Ég sé þess vegna ekki ástæðu til að hafa frekari umr. um þetta mál, fyrr en það hefur sýnt sig, hvort því er ætlað að ganga í gegn á þessu þingi eða ekki, sem er undir því komið, hvort samkomulag næst um málið. En meiri hl. fjhn. er því meðmæltur, eins og fyrir liggur, að málið gangi fram.