20.12.1947
Sameinað þing: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í D-deild Alþingistíðinda. (3132)
39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Herra forseti. Ég hef ekki góða trú á að samþykkja þetta nú, án þess að tala meira við þessa aðila, viðskiptan. og menntamálaráð, um þá skipan, sem gert er ráð fyrir í niðurlagi till. Hitt er annað mál, að brýna nauðsyn ber til þess að koma betra skipulagi á þessi mál en verið hefur, og sérstaklega þarf að koma á samvinnu milli menntamálaráðs og viðskiptanefndar af þeim ástæðum, sem frsm. og aðrir hafa tekið fram. En hvort hún á að vera eins og kemur fram í niðurlagi till., er meira álitamál, og þyrfti nauðsynlega að hafa þessa aðila með í ráðum, svo að ekki komi í upphafi togstreita milli þeirra aðila, sem eiga að vinna saman um málið. Vildi ég beina því til hæstv. forseta, hvort ekki mætti fresta afgreiðslu þessarar till., þar til þ. kemur saman aftur, og ná saman á þeim tíma þessum aðilum og vita, hvort með þeim gæti ekki orðið samkomulag um nýtt skipulag á þessu, — till., sem þá mætti taka upp, þegar þ. kæmi saman. En ef mönnum þykir þetta ekki tiltækilegt, að fresta málinu þennan tíma, þá er spurning, hvort n. vildi ekki bara taka til baka síðari hluta till., sem sé það, sem slær því föstu, að menntamálaráð skuli veita gjaldeyrisumsóknum móttöku, en samþykkja aðeins fyrri hlutann, þar sem skorað er á stj. að leysa brýnustu þarfir námsmanna.