10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í D-deild Alþingistíðinda. (3141)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Gylfi Þ. Gíslason:

Snemma á þinginu flutti ég till. til þál. um yfirfærslu á gjaldeyri til námsmanna erlendis, þar sem skorað var á ríkisstj. að hlutast til um, að gjaldeyrisyfirvöld láti námsmönnum þeim, er nú stunda eða vilja stunda nám erlendis í gagnlegum fræðum, nægilegan gjaldeyri í té, miðað við framfærslukostnað og námskostnað í hverju landi. Jafnframt, að ríkisstj. hlutaðist til um, að skipuð yrði nefnd þriggja manna til þess að vera gjaldeyrisyfirvöldunum til ráðuneytis varðandi yfirfærslur til námsmanna, einn tilnefndur af menntamálaráði, annar af háskólaráði og hinn þriðji af skólum þeim, er rétt hafa til þess að brautskrá stúdenta. Hv. allshn. tók till. vel, kynnti sér málið og taldi ekki ástæðulaust að telja þennan gjaldeyri til brýnustu nauðsynja. N. taldi þó ekki rétt að skipa sérstaka n., en lagði til, að menntamálaráði yrðu sendar umsóknirnar og það yrði þannig ráðunautur gjaldeyrisyfirvaldanna í þessum málum. Allshn. mælti með till. með þessari breyt.

Málið var tekið fyrir á síðasta fundi Sþ. fyrir jólaleyfi. Hv. þm. Ísaf. (FJ) og hæstv. menntmrh. (EystJ) héldu því þá fram, að það væri ekki heppilegt, að gjaldeyrisyfirvöldin sendu menntamálaráði umsóknirnar, því að það yrði þungt í vöfum. Nokkrar umræður urðu um málið og varð því ekki lokið, heldur tekið af dagskrá. Síðan hafa ég og nokkrir þm. rætt málið, og málið hefur líka verið rætt við hæstv. menntmrh., og hefur okkur komið saman um að bera fram brtt. við brtt. n. þess efnis, að viðskiptanefnd hafi samráð við menntamálaráð um veitingu þessara gjaldeyrisleyfa. Það yrði auðvitað samkomulagsatriði milli gjaldeyrisyfirvaldanna og menntamálaráðs, hvernig þessu yrði hagað.

Málið hefur verið rætt við form. allshn., og hann er ekki á móti þessari lausn. Ekki heldur hæstv. menntmrh.

Fleiri orð sé ég ekki ástæðu til að hafa um þetta mál. Ég vil bara vekja athygli á því, að allshn. er öll sammála um það, að gjaldeyrir til námsmanna erlendis sé nauðsyn, er taka þurfi fullt tillit til, og að heppilegt sé, að menntamálaráð sé ráðgjafi í þessum málum. Námsmönnum er vel borgið, ef menntamálaráð gefur upplýsingar um þarfir þeirra. Ég vil því fyrir hönd okkar fjórmenninganna óska þess, að till. verði samþ.