17.03.1948
Sameinað þing: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (3155)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Mér finnst meðferð þessa máls öll vera skýrt dæmi um það, hvernig hægt er að gera einfalt mál að margbrotnu máli í þessari stofnun. Málavextir eru þeir, að snemma á þinginu ber ég fram þáltill. um yfirfærslu á gjaldeyri til námsmanna erlendis. Ég taldi mig gera það af brýnni nauðsyn, og það hefur ekkert komið fram í umr., sem benti til þess, að ekki hafi verið full ástæða til að hreyfa málinu. Engu að síður þvælist það hér og hefur verið rætt á mörgum fundum. Hv. allshn. tók málinu mjög vel og lagði til löngu fyrir jól, að það yrði afgreitt, þó hefur svo farið, að það er enn til umr. og virðist því enn ekki eiga að ljúka. Að vísu held ég, að umr. um þetta mál eigi verulegan þátt í því, að menntmrn. hefur látið málið til sín taka og komið á nokkurri samvinnu milli viðskiptan. og menntamálaráðs um lausn málsins. Ég skil það hins vegar svo, að sú samvinna sé ekki endanlega komin á, og með tilliti til þess kom mér dagskrártill. hv. þm. V-Húnv. dálítið á óvænt, þar sem hún gerir ráð fyrir alveg fastákveðnu formi og samvinnu milli viðskiptan. og menntamálaráðs. Enn fremur er dagskrártill. að því leyti undarleg, að tekið er upp í hana allt efni þeirrar brtt., sem hún er dagskrá við.

Ég vil að síðustu þakka form. allshn. fyrir það, að hann skuli mæla með því, að brtt. 434 verði samþ. Hins vegar skal ég ekkert vera á móti þeim tilmælum hæstv. menntmrh., að umr. verði frestað til þess að n. fengi málið enn til athugunar. Fyrir mér vakir það einungis að fá einhvern endanlegan botn í þetta mál, þannig að hagur námsmanna, sem nú stunda nám erlendis, verði betri og tryggari en verið hefur undanfarið hálft annað ár. Það er mergurinn málsins.