04.02.1948
Sameinað þing: 41. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í D-deild Alþingistíðinda. (3223)
100. mál, lyfjabúðir í Reykjavík
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Herra forseti. Út af ræðu hv. þm. Snæf. vil ég upplýsa, að ástæðan fyrir því, að ekki hafa verið gefin út fleiri lyfsöluleyfi, er sú, að verið er að reyna að ná samkomulagi um heildarskipun þessara mála. Hins vegar er ekki óeðlilegt, að það sé athugað að gefa út fleiri leyfi, því að þetta mál er í heild sinni svo umfangsmikið, að lítil von er til þess, að samkomulag náist um lausn þess í náinni framtíð. Þess vegna er ekki óeðlilegt, að athuguð sé afstaða Rvíkur út af fyrir sig til þessara mála.
Hv. þm. Snæf. fullyrti, að enginn skortur væri á iðnlærðum mönnum til þess að taka að sér forstöðu lyfsölubúða. Í þessu sambandi er þó rétt að athuga, að ef miklu fleiri lyfsöluleyfi yrðu gefin út í Rvík nú, þá er hætt við því, að það mundi verða á kostnað annarra staða úti á landi, og það má ekki bæta svo úr hér í Reykjavík, að ástandið verði óþolandi annars staðar. Það er því margt að athuga í þessu sambandi, og ég vonast til þess, að ég geti haft samvinnu við hv. þm. Snæf., er þar að kemur. — Ég sé svo ekki ástæðu til þess að segja meira um þetta nú.