05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í D-deild Alþingistíðinda. (3454)
27. mál, sendiferðir til útlanda
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Með þessari till., ef samþ. yrði, væri ríkisstj. falið að gefa Alþ. sundurliðaða skrá um þær fjárhæðir, sem greiddar hafa verið af ríki og ríkisstofnunum sem ferða- og dvalarkostnaður eða laun sendimanna, sem hafa farið utan opinberra erinda, síðan stríði lauk, til að taka þátt í ráðstefnum og þingum, í markaðsleit eða til að undirbúa hinar og aðrar framkvæmdir. Nú sem stendur er mikill gjaldeyrisskortur og mikið talað um nauðsyn þess að spara gjaldeyri. Á hinn bóginn er það almannarómur, að ríkisvaldið sjálft hafi jafnvel greitt óhóflega mikið fé til sendiferða erlendis vegna þátttöku í alls konar ráðstefnum og þingum, vegna markaðsleitar o. s. frv. Sérstaklega leikur orð á því, að fyrrv. ríkisstj. hafi verið helzt til ráðdeildarlítil í þessum efnum, eftir að stríðinu lauk, og heldur lítið sparsöm á þess háttar kostnað. Ég skal ekkert fullyrða um rökin fyrir þessum almannarómi. Mér er að vísu kunnugt um nokkur dæmi til varnaðar í þessu efni (í sambandi við fyrrv. hæstv. ríkisstj. og þá sér í lagi fyrrv. atvmrh.), er ég tel lítt verjandi. Ég ætla þó ekki að nefna hér nein dæmi, því að ég vil ekki vera svo ósanngjarn að nefna þau dæmi, sem ég þekki, ef önnur enn þá verri dæmi skyldu vera til, sem mér væri ekki kunnugt um. Á þessu stigi málsins fer ég því ekki út í þetta í einstökum atriðum, enda væri það að taka fram fyrir hendurnar á ríkisstj., sem einmitt er falið með þessari till. að láta gera og birta Alþ. skrá yfir þessi mál.
Það má segja, að tilgangurinn með þessari till. sé tvíþættur. Í fyrsta lagi: Ef almannarómurinn reynist rangur, er rétt, að hann sé borinn til baka með skýrum rökum og sýnt, að ekki hafi verið um neitt óhóf að ræða. Í öðru lagi: Ef almannarómurinn reynist á rökum reistur, er nauðsynlegt, að hið sanna komi fram, svo að það geti orðið núverandi ríkisstj. til hæfilegs varnaðar. Annað sé ég ekki ástæðu til að láta fylgja þessu máli, sem ég býst við, að verði vísað til allshn., og ég vænti þess, að hún mæli með því til samþykktar.