05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 525 í D-deild Alþingistíðinda. (3767)
901. mál, síldarverksmiðja á Norðausturlandi
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vil aðeins benda hæstv. fjmrh. á það, sem ég gerði raunar í sumar, að nýbyggingarráð, sem hæstv. ráðh. var formaður fyrir, var byrjað að athuga það mál, sem hér um ræðir, og það er nauðsynlegt, að hin nefndin eða stjórn síldarverksmiðja ríkisins, sem nú á að framkvæma þessa athugun, fái það, sem nýbyggingarráð var búið að gera. Að mér áheyrandi lagði hæstv. fjmrh. það líka fyrir, að þetta skyldi gert, en fyrir nokkru síðan vissi ég til þess, að þessi gögn voru enn í vörzlu nýbyggingaráðs, en ekki í vörzlu stjórnar SR. Ég vildi því árétta það, að þessi gögn kæmust í hendur verksmiðjustjórnarinnar, áður en hún gerir þær athuganir, sem hér um ræðir.