25.02.1948
Sameinað þing: 47. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í D-deild Alþingistíðinda. (3906)
909. mál, bifreiðaeign ríkissjóðs, opinberra stofnana og ríkisfyrirtækja
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Mér skildist á svari hæstv. fjmrh., að hann læsi upp þá bíla, sem ríkissjóður er talinn eiga, enda gefur fsp., eins og hún er orðuð, varla tilefni til annars. Ég hjó eftir því við þennan upplestur, að hann taldi hjá sumum stofnunum upp færri bifreiðar en maður veit, að þær nota og telja sínar. Fór ég að íhuga, hvernig á þessu stæði, og minntist þess, að við sumar þær stofnanir, sem hann las upp, eru bifreiðar í eigu starfsmanna, sem eru að öllu leyti reknar á kostnað stofnunarinnar. Ég vil því benda hæstv. ráðh. á, að þegar sparnaðarn. rannsakar opinberan bifreiðakostnað, þá er það ekki sjálf eignarheimild ríkissjóðs eða ríkisstofnana yfir bifreiðunum, sem er afgerandi um það, hvort þær eru reknar á kostnað hins opinbera, heldur notkunin, og það eru þó nokkuð fleiri bifreiðar í þeim stofnunum, sem hann las upp, sem að öllu leyti eru reknar á kostnað ríkisins.