18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (706)

61. mál, sementsverksmiðja

Frsm. meiri hl. (Páll Zóphóníasson):

Iðnn. hefur komið saman á fund og rætt málið ásamt hæstv. ráðh. Það hefur orðið samkomulag um að taka 2. stafl. aftur með tilliti til þess, sem hæstv. dómsmrh. sagði, að ef ekkert stendur um það, hver eigi að ákveða verksmiðjunni stað, þá eigi atvmrh. að gera það í samráði við meðráðh. sína. Í trausti þess að málið verði vel athugað tek ég till. mína aftur og geri ráð fyrir, að öll n. og d. séu sammála um þessi heimildarlög.