09.03.1948
Efri deild: 77. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 497 í B-deild Alþingistíðinda. (770)
178. mál, fiskmat o.fl.
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Af því að ég hafði áður lýst yfir því í d., að ríkisstj. sýni þ. oft lítilsvirðingu með því að mæta ekki við 1. umr. í málum, sem hún á að tala fyrir, vil ég því þakka hæstv. fjmrh. fyrir að mæta hér núna — og vona, að þetta boði stefnubreytingu, hvað þetta snertir. — Það er hér talað um sparnað í sambandi við framkvæmd þessa máls, sem á að nást með því að leggja niður ýmsar stöður, sem áður hafa verið launaðar úr ríkissjóði. Mig langar því að fá upplýsingar um það hjá hæstv. ríkisstj. — ekki aðeins í sambandi við þetta frv., heldur af því að ég get búizt við því, að ýmislegt svipað komi upp á teningnum í þessum efnum, ef á að fara að draga úr útþenslu á launakerfi opinberra embættismanna, sem sé, hvað verði um þessa menn og hver eru réttindi þeirra, sem þannig verða sviptir störfum. Er það víst, að þeir eigi ekki kröfu á launum, þegar stöður þeirra eru lagðar niður? Þetta atriði er mér ekki ljóst, og vildi ég því heyra úrskurð hæstv. ríkisstj. um það.