28.03.1949
Sameinað þing: 55. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)
42. mál, fjárlög 1949
Hermann Guðmundsson:
Herra forseti. Ég kveð mér ekki hljóðs til að tala um fjárlfrv. í heild, heldur til að mæla fyrir örfáum brtt., sem ég hef flutt.
Í fyrsta lagi er IV. brtt. á þskj. 481 við brtt. meiri hl. fjvn., að framlag til Hafnarfjarðarhafnar hækki úr 150 þús. í 300 þús. Ástæðan fyrir þessari till. er sú, að þessi framkvæmd í Hafnarfirði, hafnargerðin, er mjög þýðingarmikil fyrir það byggðarlag, þar sem það á alla sína framtíð undir, hvernig tekst með þá framkvæmd. Fjvn. hefur látið meira til annarra byggðarlaga, sem hafa þó mun minni mannfjölda, en mér virðist sjálfsagt, að Hafnarfjörður fái þann styrk, sem látinn er hæstur til hafnargerðar, 300 þús., eins og látið er til Akraness.
Þá á ég brtt. um það, að veittar verði 5 þús. kr. til lesstofu fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. Ástæðan er sú, að í Hafnarfirði starfar fulltrúaráð verkalýðsfélaganna eins og víða annars staðar. Þetta fulltrúaráð hefur lesstofu, sem það starfrækir eins og önnur fulltrúaráð. Hins vegar hefur fjvn. ekki fundið ástæðu hjá sér til að styrkja þessa starfsemi, eins og hún gerir víða annars staðar, eins og í Reykjavík. Þess vegna er sanngjarnt að til þessarar starfsemi verði látin renna ákveðin upphæð. Hér eru til teknar 5 þús. kr.
Þá á ég loks brtt. um það, að styrkur til Leikfélags Hafnarfjarðar verði hækkaður úr 3 þús. kr. í 6 þús. Það er að sjálfsögðu góðra gjalda vert, að Alþingi og fjvn. skuli hafa með till. sínum lagt til, að veittar verði 3 þús. kr. til þessarar starfsemi, en það er að sjálfsögðu ekki stór skildingur nú. Starfsemi þessa félags er mjög þýðingarmikil fyrir þetta byggðarlag eins og annarra leikfélaga. Meiri hl. fjvn. leggur til, að Leikfélag Akureyrar fái 6 þús. kr. Leikfélag Hafnarfjarðar vinnur eins mikið menningarstarf, og ég tel því sanngjarnt, að það fái sama styrk.
Ég er meðflm. ásamt tveimur öðrum hv. þm. að annarri till. Hún verður skýrð af öðrum, svo að ég get látið það nægja, sem ég hef sagt.