15.11.1948
Neðri deild: 17. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1298 í B-deild Alþingistíðinda. (1630)
5. mál, niðursoðin mjólk
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Ég benti á það við 1. umr. þessa máls, að það gæti verið æskilegt að hafa einhverja helmild í l., ef eitthvað kæmi fyrir hina íslenzku framleiðslu á þessu sviði, þannig að möguleikar til innflutnings á þurrmjólk væru ekki algerlega bannaðir. Ég sé nú, að hv. landbn. hefur tekið þetta til greina og sett hér inn í l. undanþáguheimild handa atvmrh. með samþykki framleiðsluráðs landbúnaðarins, ef með þarf. Nú er þetta að vísu nokkuð einhliða ákvarðað, þar sem þetta ráð er einungis sá aðili, sem gætir hagsmuna landbúnaðarins, en ekki látið á vald neinna annarra aðila að vera þar með, sem hafa þó nokkurra hagsmuna að gæta, t.d. þau iðnfyrirtæki, sem verða að hafa þessa vöru. Ég skal út af fyrir sig ekki gera aths. við þetta, en vildi spyrja hæstv. frsm., hvernig færi t.d., ef ekki væru fáanleg í landinu þau hráefni, sem þessi iðnfyrirtæki þurfa á að halda, hvort þessi undanþáguheimild yrði þá notuð, ef ekki væri hægt að fullnægja eftirspurninni.