14.03.1949
Neðri deild: 80. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2089 í B-deild Alþingistíðinda. (2955)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Herra forseti. Út af því, sem þm. Siglf. sagði, þá hef ég aldrei minnzt á í mínum ræðum, að Atlantshafssáttmálinn ætti að þýða sama og árásarbandalag. En hitt vitum við, að það eru til þjóðir, sem ráðast inn í lönd annarra og leggja þau undir sig, og við þekkjum vel dæmi um slíkt frá síðustu árum. Við vitum, hvaða stórveldi hefur ráðizt inn í fjölda landa og lagt þau undir sig og kúgað milljónir manna. (EOl: Það eru Atlantshafsbandalagsþjóðir, sem það hafa gert.) Það vita allir, hverjir það eru. (EOl: Eru það Bretar? — ÁkJ: Og hvað um Hollendinga?) Herra forseti. Ég vil óska eftir, að þessir þm. séu ekki alltaf að grípa fram í. Þeir virðast ekki kunna neina mannasiði. (EOl: Ef stjórnin kynni einhverja siði. — Forseti: Það verður að hætta umræðum um þetta mál, ef þm. gefa ekki hljóð.) Það er von, að þessir þm. eigi bágt með sig, og þeir eiga sannarlega bágt.
Út af síðustu ræðu þm. Siglf. og fyrirspurn hans, hvort nokkur munnleg eða bréfleg viðskipti hafi átt sér stað milli ríkisstj. og bandarísku stjórnarinnar, er því til að svara, að eins og gefur að skilja, þá fara ýmis bréfaskipti milli vinsamlegra þjóða, og meðal annars hafa Bandaríkin leitað eftir, hvort Íslendingar óskuðu eftir að koma einhverju á framfæri í sambandi við þessi mál, en að um boð eða skipun hafi verið að ræða af hálfu Bandaríkjanna í þessu máli, það er fjarstæða. Og þessi ákvörðun um för utanrrh. vestur ásamt fulltrúum hinna stjórnmálaflokkanna, sem þátt taka í ríkisstj., var tekin af íslenzku ríkisstj., eins og ég hef áður sagt, og þótti bæði rétt og skylt að kynna sér þessi mál, eftir að vitað var, að Íslandi yrði boðin þátttaka í Atlantshafsbandalagi, og áður en ákvörðun væri tekin í málinu.