05.04.1949
Neðri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í C-deild Alþingistíðinda. (3387)
49. mál, dýrtíðarráðstafanir
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Það eru aðeins nokkur orð. Fyrst vikið hefur verið að opinberum starfsmönnum og þeirra óskum um bætt launakjör, þá er rétt, að það komi fram, að þeir hafa ekki að neinu verulegu leyti rökstutt sínar kröfur með því að leggja til, að vísitölubindingin verði afnumin. Ýtrustu kröfur þeirra eru 36% launahækkun, en kaupskerðing vegna vísitölubindingarinnar nemur 6–8%. Höfuðrök opinberra starfsmanna eru samanburður við hækkuð laun í landinu frá því, að launalögin voru sett, er þeir taka kaup eftir. Í rökstuðningi sínum fyrir hækkuðu kaupi vitna þeir ekki til vísitölubindingarinnar.
Út af Alþýðusambandinu skal ég geta þess að gefnu tilefni, að enda þótt stjórn þess sé að miklum meiri hluta skipuð alþýðuflokksmönnum, þá hafa samtökin vitaskuld frjálsar hendur til að taka sínar ákvarðanir, og er þar ekkert flokksræði, þó að samstarfið milli Alþýðusambandsins og Alþfl. sé hið bezta. Krafa stjórnar Alþýðusambandsins hefur ekki verið afnám vísitölubindingarinnar, heldur er hún sú, að bætt yrði upp í kaupi sú 10 stiga hækkun, sem orðið hefur á hinni raunverulegu vísitölu síðan dýrtíðarlögin voru sett, þá var vísitalan 319 stig, en er nú 329 stig. Alþýðusambandið hefur heldur ekki fyrirskipað neinu verkalýðsfélagi að leggja út í verkfall út af þessu, en bent þeim á að hafa lausa samninga, jafnframt því sem leitað hefur verið eftir samstarfi við ríkisstj. og samvinnu í þessu efni, og ríkisstj. hefur lýst yfir, að hún óskaði einnig eftir þessari samvinnu og samstarfi til að athuga, hvernig hægt væri að samrýma þau sjónarmið sem bezt, að halda niðri dýrtíðinni, en hafa kjör almennings jafnframt sem allra bezt. Vona ég, að samkomulag verði milli stjórnar Alþýðusambandsins og ríkisstj. um þessi mál, því að höfuðkrafa Alþýðusambandsins er ekki afnám vísitölunnar, heldur að kaup hækki sem svarar þeim 10 stigum, sem vísitalan hefur hækkað um síðan dýrtíðarlögin voru sett. — Þetta sé ég ástæðu til að taka fram út af orðum hv. þm. Siglf.