09.11.1948
Neðri deild: 12. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í C-deild Alþingistíðinda. (3639)

20. mál, skipulag kaupstaða og kauptúna

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Eins og getið er um í grg. fyrir þessu frv., er það samið af nefnd, sem skipuð var til þess af félmrn. á sínum tíma. Í frv. þessu eru dregin saman í eina heild nokkur þau ákvæði, sem gilda um skipulag bæja og kauptúna, og einnig eru hér sett nokkur ný ákvæði, sem að fenginni reynslu þótti rétt að láta þar standa. Höfuðbreyt. í þessu frv. frá gildandi l. er það, að með skipulagsnefnd ríkisins, sem ætlað er að sjá um framkvæmd skipulagsmálanna undir stjórn ráðuneytisins, starfi skipulagsstjóri, sem sé sérstakur embættismaður ríkisins. Það hefur að vísu verið svo undanfarið, að skipulagsstjóri hefur verið starfandi og haft skrifstofu, en án þess þó að staða hans eða embætti væri ákveðið í lögum. — Að öðru leyti er nú ekki ástæða við 1. umr. málsins af minni hálfu — nema því aðeins að sérstakt tilefni gefist — að fara um frv. fleiri orðum. Það er hvorki flókið né margbrotið. En ég tel rétt, að heildarlög fáist um þetta efni, og þess vegna er frv. þetta lagt fram. — Ég legg til, að því, að lokinni þessari umr., verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.