22.10.1948
Efri deild: 5. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í C-deild Alþingistíðinda. (3673)
19. mál, útsvör
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Herra forseti. Út af fyrirspurn hv. 1. þm. N-M. vil ég geta þess, sem ég upplýsti á síðasta Alþ. og hann mun vita, að mþn., sem hefur samið frv. það, sem hér liggur fyrir, samdi einnig frv. til l. um heimilisfang og um manntal, en við athugun í félmrn. þótti ekki fært að leggja fyrir Alþ. frv. eins og mþn. gekk frá þeim, og er þetta því undir sérstakri athugun, og get ég ekki fullyrt, hvenær frv., sem hv. þm. spyr um, verður tilbúið. En væntanlega líður ekki langur tími, þar til það kemur fyrir Alþ. Ég skal fyrir mitt leyti gera það, sem ég get, til þess að herða á því.