29.10.1948
Neðri deild: 8. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í B-deild Alþingistíðinda. (458)
36. mál, útflutningur og innflutningur á íslenskum og erlendum gjaldeyri
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Á síðasta vori voru samþ. l. um útflutning og innflutning á íslenzkum og erlendum gjaldeyri, sem áttu að vera til þess að tryggja það betur en áður var gert, að allur gjaldeyrir, sem inn í landið kæmi, kæmi til skila og að ekki væri smyglað gjaldeyri út úr landinu og farið á bak við gjaldeyrisl. Við setningu þessara l. var nokkuð rætt við tollstjóra og lögreglustjóra um nokkur framkvæmdaratriði þeirra l. Og niðurstaðan varð sú, að ákveðið var, að öllum peningum erlendum, sem inn í landið kæmu, skyldi skilað jafnóðum og þeir,sem með þá kæmu, kæmu inn í landið. Báðir þessir aðilar, sem ég gat um, að talað hefði verið við um þetta efni, voru í vafa um, að þetta væri framkvæmanlegt, en vildu þó gera tilraun í því efni. Eftir að farið var svo að framkvæma þessi l., kom í ljós, að þeirra dómur í þessu reyndist réttur, því að sums staðar er þetta erfitt og annars staðar óframkvæmanlegt. Og þess vegna voru þá sett brbl. um breyt. á þessu. Þessi brbl. voru sett í júní, en skömmu eftir að upphaflegu l., sem sett voru um þessi mál í vor, komu til framkvæmda, og hafa þau brbl. verið í gildi síðan. — Þetta frv., sem hér er flutt, er einungis til staðfestingar á nefndum brbl., og ég vænti, að það verði samþ. — Leyfi ég mér svo að leggja til, að frv. þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjhn.