26.01.1949
Sameinað þing: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 829 í D-deild Alþingistíðinda. (5201)
920. mál, skipakaup
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Orð fyrirspyrjanda gefa ekki tilefni til að segja margt. Í sambandi við kaup á þessum 10 nýju togurum skal ég geta þess, að án þess að þessir togarar væru nokkuð auglýstir höfðu ríkisstj. borizt umsóknir frá 50 aðilum um kaup á þessum togurum. Þar af voru mjög margir, sem líklegir þóttu til að geta lagt fram sinn venjulega hluta af andvirði skipsins. Varðandi yfirfærslu á fé fyrir þessa togara leitaði ríkisstj. til fjárhagsráðs, sem samþ. fyrir sitt leyti að stuðla að því, að peningarnir yrðu yfirfærðir í samræmi við gerða samþykkt, og á innflutningsáætluninni, sem er í höndum ríkisstj. frá fjárhagsráði, er gert ráð fyrir greiðslu í erlendum gjaldeyri fyrir það, sem greiða þarf til þessara togarakaupa á árinu 1949, og mun svo verða áfram.