06.12.1948
Efri deild: 25. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (543)

14. mál, kyrrsetning og lögbann

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Ég vil aðeins taka fram, að ef hæstv. dómsmrh. þykir varhugaverðar þessar tvær síðustu brtt., geri ég ráð fyrir, að n. hafi ekkert á móti því að taka þessar brtt. aftur til 3. umr., ef þess er óskað, og ræða þá nánar við hæstv. ráðh. um þetta, ef honum finnst ástæða til þess, en mér finnst þetta hvort tveggja heldur til bóta en hitt, gagnstætt því, sem hæstv. ráðh. finnst. — Allshn. er skipuð 4 lögfræðingum, en nú sé ég ekki viðstaddan hér neinn af hinum þremur til þess að ræða við, og teldi ég því heppilegra, að þessar 2 brtt., sem deilt er um, væru látnar biða, þar til ég get ráðfært mig við meðnm. mína. Vel má vera, að við 3. umr. komi fram nýjar brtt., og væri þá heppilegra að ganga rækilega frá þeim brtt., sem þegar er ekkert deilumál um, og ljúka þeim nú, en láta hinar bíða, þar sem við getum haldið fund aftur og athugað þetta mál. Væri því heppilegast, að n. tæki aftur til 3. umr. 6. og 7. lið brtt. á þskj. 159.