06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í D-deild Alþingistíðinda. (5508)

946. mál, húsameistara- og eftirlitsstörf við nokkur stóhýsi

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Það er ein af þessum stofnunum, sem um er spurt, sem heyrir undir mitt ráðuneyti. Stýrimannaskólinn nýi sem kallaður er í fyrirspurninni, þ.e. Sjómannaskólinn, og get ég gefið þær upplýsingar strax, þótt ekki séu í svipinn tiltæk svör varðandi allar þær stofnanir, sem hér er spurt um. Umsjón með byggingunni hafði nefnd, sem til þess var skipuð, og réð hún, eða ráðuneytið, húsameistara, sem störfuðu allan tímann eða árum saman og fengu fyrir störfin samtals kr. 144.453,76. Enginn sérstakur eftirlitsmaður var ráðinn umfram húsameistarana, svo að eftirlitslaunin voru engin.