22.04.1949
Efri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (722)
16. mál, áburðarverksmiðja
Þorsteinn Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég hafði nú ætlað mér að minnast á efni þessa frv. nánar, en ég hef áður gert, en af sérstökum ástæðum verður ekki af því í þetta sinn. Ég hef sem form. landbn. talað við hæstv. atvmrh. Hans hugur var þá sá, að frv. gengi, eins og það kemur frá n., til 3. umr., og förum við þess á leit, að flm. þeirra brtt., sem fram hafa komið, fresti þeim til 3. umr. Ég er búinn að tala við 1. þm. Reykv. um þetta, og hann lýsti yfir, að hann gæfi samþykki til þessa, að hans till. væri frestað til 3. umr., og geri ég ráð fyrir, að hv. þm. Barð. muni vera líks sinnis, því að milli umræðna verður málið athugað betur af atvmrh., ríkisstj. í heild og n. Virðist mér því, að ástæðulaust muni að teygja lopann lengur að sinni um þetta mál, og skal ég heldur ekki gera það, en skal geta þess aftur, að ég hef umboð hv. 1. þm. Reykv. til að taka brtt. hans aftur til 3. umr.