09.01.1951
Neðri deild: 46. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í B-deild Alþingistíðinda. (2429)
57. mál, lóðaskrásetning á Akureyri
Frsm. (Jónas Rafnar):
Herra forseti. Allshn. hefur athugað þetta frv. og leggur einróma til, að það verði samþ., og leyfi ég mér að vísa til nál. á þskj. 330. Við 1. umr. gerði ég nokkurn veginn tæmandi grein fyrir frv., og hef ég þar engu við að bæta, en legg til, að málinu verði vísað til 3. umr.