18.10.1950
Sameinað þing: 6. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í D-deild Alþingistíðinda. (4021)

25. mál, friðun rjúpu

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Ég vil aðeins, af því að komið hafa fram andmæli gegn því, að till. sé vísað til n., bæði frá hv. 1. flm. og hv. 2. þm. Rang., halda fast við mína tillögu um, að málinu verði vísað til nefndar. Ræður þm. hafa sannfært mig um það, að full þörf er á því, að þetta mál fái athugun í n., af því að þeir tala um það meira af ofstæki en rökum, þar sem slegið er á þá strengi, að það sé verið að nota dýrmætan tíma Alþ. illa með því að tala um þetta mál, en ég vil benda á það, að þó að þetta mál fái athugun í n., þá þarf það hvorki að stytta né lengja þann tíma, sem Alþ. þarf að sitja. En mér virtist það skína út úr ummælum þessara þm., að þeir vilji ekki, að málið sé athugað hlutlaust í n. og færð fram rök af vísindamönnum fyrir þeirra kenningu. En það er ekki annað, sem ég fer fram á. Nú liggja fyrir upplýsingar um það, að rjúpunni hafi stórfjölgað, og álít ég eðlilegt, að n. kynni sér það atriði, og hitt tekið til athugunar í sambandi við það, hvort þá sé full lagaheimild fyrir því að gera þetta, sem hér um ræðir. — Ég vil svo aðeins endurtaka það, að ég held fast við mína till. um, að málið fari til n., eftir að hafa heyrt ræður hv. þm.