17.12.1951
Efri deild: 45. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)
145. mál, vegalög
Sigurður Ó. Ólafsson:
Herra forseti. Það hafa breytzt mikið viðhorf í þessu máli við þessa ræðu hv. þm. Barð., þar sem hann lýsti því yfir, að hann muni taka upp þessar till. við þessa umr., þó að flm. þeirra taki þær til baka til 3. umr. Mér þykir þess vegna hlýða, að n. athugi þessar till., og legg þess vegna til, að þessari umr. verði frestað, og mun ég reyna að ná saman nefndarfundi um þær í kvöld eða á morgun.