26.11.1951
Neðri deild: 33. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1159 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)

47. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum

Frsm. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls voru gerðar nokkrar breyt. á frv., en við nánari athugun þótti heppilegra að færa tvö atriði til annars vegar, þ.e. í fyrsta lagi, að í stað „ráðuneytis“ komi „ráðherra“ á tveimur stöðum, og er það gert til samræmis við önnur atriði frv. — Í öðru lagi er sú breyt. á 25. gr., að í stað þess, að þar er vitnað í ákveðna grein, er lagt til, að vitnað verði í reglugerð eftir þeirri grein. Það hafði láðst að lagfæra þetta áður, en þar sem greininni, sem vitnað var i, var breytt, þurfti að sjálfsögðu að gera þessa lagfæringu. — Það er því sem sagt ekki um að ræða verulegar breyt. á frv.