02.11.1951
Sameinað þing: 11. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í D-deild Alþingistíðinda. (3357)

49. mál, bifreiðavarahlutir

Emil Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki fjölyrða um þessa þáltill., en mig langar til að fagna því, að fram skuli vera komin þáltill. frá hv. 2. þm. Rang., sem gengur í þá átt að draga úr þeim álögum, sem á almenning hafa verið lagðar. Ég mun því leggja til, að þessi þáltill. verði samþ. og varahlutar til bifreiða undanþegnir þeim skatti, sem á þá hefur verið lagður, — ja, það er víst a. m. k. óhætt að segja með vafasömum hætti, strax daginn eftir að Alþ. lauk störfum s. l. vor.

Ég vil taka það fram, að á þessum lista eru ýmsar vörur, sem eðli sínu samkvæmt ættu að vera undanþegnar þessum skatti, og skal ég hér t. d. nefna ýmsar byggingarvörur. Það er þörf á því, að allt sé gert, sem hægt er, til þess að draga úr byggingarkostnaðinum, sem er að sliga þjóðfélagið, auk þess sem nær ómögulegt er að fá lán til byggingarframkvæmda. Ég vil lýsa því yfir, að ég mun bera fram vatill. við þessa þáltill., þar sem farið verður fram á, að byggingarvörur verði einnig felldar niður, og vænti ég mér þá stuðnings hv. flm.