29.01.1953
Efri deild: 58. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (1063)
197. mál, tollskrá o.fl.
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég vil beina því til forseta, hvort það mundi vera mögulegt, ef till. er samþ. nú, að fella það aftur úr frv. við næstu umr. — Ég vil mjög eindregið beina því enn til hv. n. að fresta málinu til athugunar. Ef það er meiri hl. hér í hv. d. fyrir að athuguðu máli að samþ. þetta, þá er það auðvitað sjálfsagt og engu til spillt, en það er sannað hér, að málið hefur ekki verið athugað. Það byggist á misskilningi, sem sagt er, að þeir tveir ágætu menn, sem nefndir voru, hafi samið þetta frv. Það getur verið, að þeir hafi sett það í formlegan búning, en frv. er byggt á starfi allt annarra manna, sem gerðu þá samanburðarvinnu, sem frv. hvílir á. Þess vegna er eðlilegt, að til þeirra sé leitað um þetta efni, og ég vil nú beina því til hæstv. forseta, hvort hann treysti sér ekki til þess að taka till. aftur til 3. umr. — annað eins hefur nú verið gert — eða þá að fresta umr. eða, ef í það fer, atkvgr. — [Fundarhlé].