16.12.1952
Efri deild: 41. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1514)

166. mál, Útvegsbanki Íslands h.f.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Um frv. þetta er ekki margt að segja, og hefur fjhn. verið sammála um að leggja til við hv. d., að það verði samþ. óbreytt. Það, sem hér er farið fram á, er það aðallega, að Útvegsbankinn hafi sömu réttindi um ýmis atriði, eins og t.d. með vaxtatöku, þó að fasteignaveð sé á bak við, eins og Landsbanki Íslands; einnig um það að krefjast veðbókarvottorða ókeypis til eigin afnota eins og þeir bankar hafa aðrir, sem hafa starfað, bæði Landsbankinn og Búnaðarbankinn. Yfirleitt er þetta frv. aðeins til að koma á samræmi milli þessara þriggja banka um þau réttindi, sem þar er talað um og aðallega eru innifalin í því, sem ég hér hef minnzt á. — Sem sagt, n. leggur til, að hæstv. d. samþ. frv. þetta óbreytt.