28.01.1953
Efri deild: 57. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1259 í B-deild Alþingistíðinda. (1789)
179. mál, löggilding verslunarstaðar í Vogum
Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):
Herra forseti. Ég ætla ekki að biðjast neinnar afsökunar á afgreiðslu þessa máls. Mér skilst, að það sé fram borið af ríkri nauðsyn, sökum þess að ekki hefur verið hægt um margra ára skeið og jafnvel áratuga skeið að fá lán út á eignir við þennan stað, sem hér er til umr.
Mér skilst, að málið liggi þannig fyrir, að verzlunarstaðurinn hafi verið takmarkaður við þessa litlu Vogavik og það sé enginn annar möguleiki, en að löggilda verzlunarstað að nýju með rýmra svæði. Þetta er gert fyrir tilmæli oddvita þar á staðnum. Frv. var undirbúið í stjórnarráðinu, og ég tel víst, að þeir starfsmenn, sem að því hafa unnið, hafi gert sér það ljóst, að þetta mundi vera einasta mögulega leiðin. Hér er um það að ræða að fá form, sem geri mögulegt að starfa þarna með eðlilegum hætti, og tel ég sjálfsagt, að hv. d. samþ. frv. eins og það liggur fyrir.