03.02.1953
Efri deild: 65. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1386 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

201. mál, erfðaleiga af hluta af prestssetursjörðum

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil taka undir það með hv. 2. þm. Árn. (SÓÓ), að ég hef orðið þess var, að forvígismönnum prestastéttarinnar er þetta mál mjög andsnúið, og þó að ég ætli ekki að hafa á móti þeim rökum, sem hæstv. landbrh. færði hér fram, þá veit ég ekki, hvort það er svo aðkallandi, að það sé nauðsynlegt að afgreiða það fyrr, en frekari viðræður a.m.k. hafa átt sér stað á milli forvígismanna prestastéttarinnar og þeirra, sem telja sérstaka nauðsyn á því að samþ. þetta frv. Ég játa það, — það er ekkert nýtt í mínum huga og hefur komið fram í umr. hér á Alþ. áður, — að ég tel prestastéttina setja ákaflega mikið ofan, ef prestar hætta almennt að búa sem bændur í sveit. Ég tel, að þeirra starf verði miklu áhrifaminna, ef þeir á þann veg dragast út úr þjóðlífinu og verða einungis embættismenn á launum, búlausir og rótlausir úti um sveitir landsins. Að svo miklu leyti sem þetta frv. kynni að stuðla að því, tel ég, að frv. sé varhugavert. Það virðist eitthvað hafa farið á milli mála um afstöðu þessarar æruverðugu stéttar til málsins, og mér finnst því a.m.k. rétt að hinkra við og gefa mönnum færi á því að athuga málið nokkru nánar.

Ég vil spyrja hæstv. landbrh., hvort hann telji yfirleitt nokkra nauðsyn á því, að málið sé afgr. á þessu þingi, en ef svo yrði talið, hvort þá mætti a.m.k. ekki, þar sem þetta er síðasta umr. nú, fresta málinu í einn eða tvo daga, þannig að afgera það þá á síðasta degi þingsins, þegar þessum mönnum hefði betur gefizt færi á því að koma fram sínum sjónarmiðum.