03.02.1953
Efri deild: 65. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1389 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)

201. mál, erfðaleiga af hluta af prestssetursjörðum

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Mér skilst samkv. rökstuðningi hv. 1. þm. N-M., að þetta frv. sé ekki sízt flutt vegna þess, að kirkjumálastjórnin hafi látið undan fallast að framkvæma lög núna í ein 20–30 ár varðandi mat á prestssetrum. Mér finnst sjálfsagt, að áður en lagabreyting slík sem þessi er gerð, sé gengið eftir því af hálfu Alþ., að gildandi lögum sé framfylgt, því að hvað þýðir að setja æ og æ ný lög, ef svo er látið undan fallast að framfylgja þeim lögum, sem eru í gildi og eiga eftir dómi hv. þm. að veita svipað aðhald og lögin sjálf?

Ég mundi nú leggja til, að þessu máli yrði vísað aftur til landbn., þannig að hún athugaði það í samráði við forustumenn prestastéttarinnar, kirkjumrn. og kirkjumálastj., kannske kirkjumrh., hvort ekki væri ráðlegra að breyta þessu í áskorun á kirkjumálastj. um að fylgja gildandi landsl. Ég leyfi mér með tilvísun til þessa, — það má vel vísa máli hvenær sem er til þingn., — að leggja til, að þessu máli sé aftur vísað til hv. landbn., og geri það að till. minni.