05.02.1953
Efri deild: 72. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (2221)
40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég skal ekki tefja menn með löngum ræðuhöldum. Eftir hina ágætu og rökföstu ræðu hy. 6. landsk. þm. og eftir það, sem ég hef áður sagt um málið, er ástæðulaust að fjölyrða um það, og er fjarri mér að tefja fyrir afgreiðslunni, ef vilji er fyrir því, þó að ekki hafi verið komizt hjá því að benda á, hvilíkt vandræðafrv., svo að vægt orð sé notað, þetta frv. er.
Ég skal þess vegna stytta mál mitt núna, aðeins lýsa því, að þó að frv. sé og hafi verið mikill óskapnaður, þá var þó mjög bætt úr því hér við 3. umr. í þessari hv. d. með samþykkt tillagna hæstv. viðskmrh. Þá voru gerðar ráðstafanir til þess a. m. k. að draga úr því stórkostlega skrifstofufargani, sem frv. hlýtur að verða samfara. En nú skilst mér, að hv. Nd. hafi bætt þessu inn í frv. aftur, ekki með nokkru móti getað misst af því skrifstofufargani og bitlingahjörð, sem auðsjáanlega er ætlunin að knýja fram. En mér finnst, að frv. verði miklu betra, ef það er fært í það horf, sem það var í, þegar það var samþ. í þessari hv. d., og mér skilst, að enn hafi enginn komið með brtt. um það, svo að ég vil leyfa mér að leggja til, að 2. gr. verði orðuð eins og gert var við 3. umr. hér í d. og 3. og 4. gr. falli niður og greinatalan breytist samkv. því. Það verður að leggja þetta fram sem skriflega brtt. — ég vil afhenda það hæstv. forseta.