03.02.1953
Efri deild: 66. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1598 í B-deild Alþingistíðinda. (2253)
98. mál, Búnaðarbankinn, byggingarsjóður verkamanna, lánadeild smáíbúðarhúsa o.fl.
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Mér þykir rétt, að það komi einungis fram hér, að ég skaut því að hæstv. landbrh. áðan, eftir að forseti hafði ráðgert, að hér skyldi ekki verða fundur áfram, hvort það væri ekki hyggilegra að hafa nýjan fund til þess að ljúka 3. umr. um þetta mál. Okkur sýndist það báðum, vegna þess að svo virtist af 2. umr., að það væru allir dm. sammála um málið. Og þá var það ljóst, að ef tækist að afgr. málið héðan í kvöld, þá gæti það sparað einn aukaþingdag. Ef það kemur hins vegar í ljós, að það er ósamkomulag, þá er auðvitað rétt að veita mönnum færi á því að koma fram sínum sérsjónarmiðum, og ég er fyllilega ásáttur með það að fresta málinu. Það var hins vegar auðvitað ekki í neinu sambandi við afgreiðslu á frv. um Iðnaðarbankann, sem þeirri hugmynd skaut upp að ljúka þessu máli hér í kvöld, vegna þess að það mál er miklu lengra á leið komið heldur en þetta, og þess vegna, ef málin eiga að vera samferða út úr þinginu, þá þarf þetta að hafa töluvert greiðari framgang, en hitt málíð. Annars geri ég ráð fyrir, að engin slík tortryggni þurfi að eiga sér stað. Menn eru sammála um meginefni þessara frv. beggja og afgreiðslu þeirra, yfirgnæfandi meiri hl. þm., eftir því sem fram er komið.