02.03.1954
Efri deild: 55. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í B-deild Alþingistíðinda. (1045)

12. mál, áfengislög

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég gat þess í ræðu minni áðan, að ég hefði ekki séð mér fært nú við þessa umr. að bera fram brtt. um það að fella ákvæðin um héraðabönn niður úr frv., þar sem þau voru samþykkt sérstaklega við 2. umr. málsins. En samkv. úrskurði hæstv. forseta um svipað efni virðist það vera heimilt eftír hans áliti. Þó að ég geti ekki talið, að þessi úrskurður hæstv. forseta sé óyggjandi, þá vil ég þó nota hann, þar sem honum verður hvort sem er ekki breytt, og bera þá fram till. um það, að þær málsgr. 10. gr., sem fjalla um héraðabönnin, verði felldar niður, og mun afhenda hæstv. forseta brtt. um það.

Út af því, sem hv. 1. þm. N–M. sagði, þá kann það að vera rétt, að það sé ekki hægt að kenna börnum í neðsta bekk t.d. þunga málfræði eða eitthvað þess konar. En skrýtið þætti mér nú það samt, ef hann útskrifaði stúdenta með þeim kröfum, sem gerðar eru við skulum segja í ensku, og ætlaði þeim ekki að læra enskuna nema í efsta bekk skólans. Ég held, að það sé miklu vissara fyrir okkur, sem nú lifum, að byrja á þessu námi hér og núna, því að ég sé ekki annað en að það muni fara sami tími til þess síðar, því að við verðum ekkert þroskaðri á þessu sviði í næsta lífi, að mér skilst. Þess vegna er þetta mjög hæpið og gæti tafið fyrir okkur til fullkomnunar um heila jarðvist, frá hans sjónarmiði, að enginn fengi að stríða við áfengisfreistingu nú.