10.11.1953
Efri deild: 18. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (132)
94. mál, happdrættislán ríkissjóðs
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Af því að hv. frsm. er ekki viðstaddur, þá get ég sem form. fjhn. getið þess, að n. hefur athugað þetta frv. og mælir með, að það verði samþykkt. Hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir efni þess við 1. umr. málsins, og sé ég ekki ástæðu til að endurtaka það. Þetta er ákaflega einfalt mál. Mætti að vísu segja, að menn, sem ekki hafa dug eða sinnu á því að vitja sinna vinninga innan þriggja ára, ættu skilíð að tapa þeim, en það þykir þó rétt að reyna til þess ýtrasta, að vinningarnir komi til skila, þar sem þeir eru auðvitað mannanna réttmæt eign.