03.11.1953
Neðri deild: 16. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í B-deild Alþingistíðinda. (153)

4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta er fram borið af hæstv. ríkisstj. Efni þess er að framlengja um eitt ár gildandi ákvæði laga um söluskatt. Málið hefur verið til athugunar í fjhn. deildarinnar, og mælir meiri hl. n. með því, að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir. N. hefur borið frv. saman við þau lög, sem nú gilda um söluskatt, og er það nákvæmlega samhljóða lögunum.

Einn nm., hv. 1. landsk. þm., hefur skilað séráliti á þskj. 126. Ég sé einnig, að hann hefur flutt brtt. við frv., að efni til um það, að nokkur hluti af söluskattinum skuli greiddur til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og þaðan aftur til bæjar- og hreppsfélaga. Ég vil benda á það, sem öllum hv. þdm. er raunar kunnugt, að í því fjárlagafrv. fyrir næsta ár, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir því, að söluskatturinn verði óbreyttur. Áætlun sú, sem birt er í fjárlagafrv. um tekjur ríkissjóðs á næsta ári, er byggð á því, að þessi löggjöf verði framlengd fyrir næsta ár. Ég tel því, að það sé ekki fært að fella niður þennan tekjustofn né heldur að rýra hann, nema gera annaðhvort, benda á nýjan tekjustofn í staðinn fyrir ríkissjóð eða fella niður af gjöldum ríkisins sem þessu svarar. Engar till. hafa hins vegar verið fram bornar um það, og meiri hl. fjhn. leggur því á móti því, að till. á þskj. 127 verði samþykktar.