13.04.1954
Sameinað þing: 49. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (2959)

206. mál, togaraútgerðin

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ég vildi aðeins leyfa mér, herra forseti, að mælast vil þess við hv. 2. þm. Reykv., að hann taki aftur brtt. á þskj. 835 um skipun varamanna. Ef slík till. yrði hér borin upp og felld, þá mundi ég líta á það sem fyrirmæli Alþ. um það, að ekki væri heimilt að skipa varamenn, eða ekki væri heimilt að taka við öðrum en þeim, sem þingið kýs, í slíka nefnd. Ég geng hins vegar út frá því sem eðlilegum hlut, að ef einhver þeirra manna, sem kosnir verða nú á Alþingi, forfallast frá störfum, þá muni ég hlutast til um, að sá flokkur. sem þann mann hefur kosið, nefni annan mann í staðinn fyrir þann, sem þannig kynni að forfallast frá störfum. — Að öðru leyti vil ég ekki tefja umr. um málið. Ég held fast við þá till., sem ríkisstj. hefur borið fram og hér hefur verið rædd, og sé ekki ástæðu til að bæta við það.