24.03.1954
Sameinað þing: 41. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í D-deild Alþingistíðinda. (3479)

222. mál, greiðslugeta atvinnuveganna

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Mér skilst nú þessar umræður vera komnar alllangt út fyrir rammann, og ég skal þess vegna ekki svara nema litlu af því, sem fram er komið.

Út af því, sem hv. síðasti ræðumaður, hv. 1. landsk., sagði, vil ég aðeins benda á það, að „monetary fund“, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, heimilar bátagjaldeyrinn með þeim rökum, að það sé ekki tvöfalt gengi, því, að það rúmist ekki innan starfsreglna sjóðsins að leyfa tvöfalt gengi. Læt ég svo útrætt um það. — Hitt vita svo menn, að það er mismunandi álag á gjaldeyrinum, og mér fannst nú sannast sagna, að ræða þessa hv. þm. væri ekki beinlínis snertandi kjarna þess máls, sem við erum að deila um.

Út af því, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, vil ég aðeins segja það, án þess að fara að stæla hér að nýju, að auðvitað er bátagjaldeyririnn reistur á löglegum grundvelli. Það er nú búið að ræða það vikum saman á þingi, og ég skal því láta þetta nægja, staðhæfingu á móti staðhæfingu.

Varðandi það, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði, þá sýndist mér hann gera ráð fyrir, — það kom raunar bert í ljós, — að ríkisstj. hefði borizt ýtarleg sundurliðuð skýrsla frá togaraútgerðinni um afkomu hennar, og hann óskaði eftir að fá að vita dóm ríkisstj. um það, á hve miklum rökum þessi skýrsla væri reist, og þá einnig, hvaða úrræði hún sæi til að ráða bót á þeim meinbug, sem þar væri leiddur í ljós. Ég vil aðeins segja hv. 4. þm. Reykv. það, að slík skýrsla hefur ekki borizt ríkisstj. Útgerðarmenn hafa komið einu sinni á fund ríkisstj. og tjáð henni, að hagur útgerðarinnar stæði höllum fæti, að það væri daglegur halli á rekstrinum, nokkuð mismunandi eftir því, hvaða veiðar væru stundaðar o. s. frv. En slík skýrsla, sem hv. þm. gerði ráð fyrir að lægi fyrir og reisti óskir sínar á, liggur ekki fyrir.

Ég veit, að hv. þm. játar það með mér, að það er ástæðulaust, að ríkisstj. sé að skipta sér af því hvert fiskverð frystihúsin greiða togaraútgerðinni., fyrr en þá ætti að koma til kasta ríkisstj. að taka á sig eitthvað af halla þeim, sem útgerðin kynni að vera rekin með. Að öðru leyti er það mál óviðkomandi stjórninni.

Það eru að vísu nokkrar aðrar umsagnir, sem væri ástæða til að leiðrétta, en ég vil ekki verja dýrmætum tíma þingsins til þess. Það eru stórmál á dagskrá í dag, sem ég vil ekki tefja með frekari umræðum um þessa fyrirspurn.