18.12.1953
Sameinað þing: 30. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (3666)
Þingfrestun og setning þings að nýju
forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Forseti Íslands hefur í dag gefið út svo hljóðandi forsetabréf :
„Forseti Íslands gerir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 73. löggjafarþings, frá 18. des. 1953, enda verði þingið kvatt til framhaldsfunda eigi síðar en 5. febr. 1954.
Gert á Bessastöðum, 18. des. 1953.
Ásgeir Ásgeirsson.
Ólafur Thors.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“ Samkvæmt þessu umboði lýsi ég því hér með yfir, að fundum þessa Alþingis, 73. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag að telja, og verður það kvatt til fundar að nýju eigi síðar en hinn 5. febr. næstkomandi.
Leyfi ég mér svo að flytja óskir mínar til þingmanna um gleðileg jól og farsælt ár.