24.02.1954
Sameinað þing: 35. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (3694)
126. mál, höfundaréttarsamningur
Lárus Jóhannesson:
Í tilefni af ræðu hæstv. dómsmrh. vildi ég taka það fram, að ég tel mig á þessu stigi málsins ekki hafa nægileg gögn í höndum til þess að koma með rökstuddar till. um, hvort við eigum að vera í Bernarsambandinu eða taka upp samninga við einstök ríki. En hitt er auðsætt mál, að því meira sem búið er að binda sig og því fleiri samninga sem búið er að gera, því erfiðara verður að taka skrefið til baka, ef það álizt eðlilegt.
Hjá allshn. Ed. er nú annað mál skylt þessu, sem afgr. hefur verið í Nd. Það er um að veita höfundum meiri rétt viðvíkjandi þýðingum á bókum þeirra en verið hefur eftir íslenzkum lögum. Við höfum í allshn. Ed. sent það frv. til umsagnar Bóksalafélagsins, en mér vitanlega hefur sú umsögn ekki borizt enn þá. En ég fæ ekki betur séð en það sé til bóta, ef allshn. Sþ. vildi athuga þetta mál á breiðari grundvelli. áður en farið er að stíga skref til þess að binda okkur með samningum við erlendar þjóðir.